Vondi kóngurinn

Af: H.c. Andersen, Jóhann Sigurðarson (læst af), Steingrímur Thorsteinsson (oversætter)

Lytteprøve

Beskrivelse

Hræðilega vondur kóngur svífst einskis til þess að ná yfirráðum yfir öllum sem á vegi hans verða. Með hrottalegum herförum og klækjabrögðum vinnur hann undir sig hvert landsvæðið á fætur öðru. Allir óttast hann og ekki að ástæðulausu.

Dag einn fær hann þá flugu í höfuðið að hann verði að sigrast á guði sjálfum. Hugmyndin heltekur hann og eyðir hann árum og dögum í að smíða fullkomin flugskip og mikilsvirk vopn til hernaðarins. En mótspyrnan kemur úr óvæntri átt og er ill við að eiga.

Þýðandi er Steingrímur Thorsteinsson.
H.C. Andersen (1805-1875) er eitt þekktasta skáld Danmerkur. Eftir hann liggja á fjórða þúsund ævintýra sem þýdd hafa verið á meira en 125 tungumál. „Vondi kóngurinn" er skopleg saga um valdhafann sem ofmetnast og skortir samkennd og samúð. Hið smáa sigrar það stóra á eftirminnilegan hátt og minnir á að oft getur lítil fluga velt þyngra hlassi en búist var við.

Yderligere informationer