Silfurskildingurinn

Af: H.c. Andersen, Jóhann Sigurðarson (læst af), Steingrímur Thorsteinsson (oversætter)

Lytteprøve

Beskrivelse

Silfurskildingur nokkur kemur skínandi fagur í heiminn. Hann er hinn kátasti og hlakkar mjög til þess að fara um víða veröld, enda á það fyrir honum að liggja. Framan af ævinni fer hann glaður manna á milli, og kynnist þannig ólíkustu einstaklingum. En dag nokkurn vill svo til að hann er staddur í buddu manns, sem er á leið í ferð um fjarlæg lönd.

Á ferðum mannsins kynnist skildingurinn myntpeningum frá mörgum löndum, en lítið sér hann sig þó um í heiminum. Í forvitni sinni gægist hann uppúr buddunni, en ekki vill betur til en svo að hann hratar uppúr henni og villist út í óvissuna.

Þýðandi er Steingrímur Thorsteinsson. H.C. Andersen (1805-1875) er eitt þekktasta skáld Danmerkur. Eftir hann liggja á fjórða þúsund ævintýra sem þýdd hafa verið á meira en 125 tungumál. „Silfurskildingurinn" er saga af þrautseigju og þolinmæði. En hún minnir okkur líka á það hvernig mismunandi gildismat getur gert það verðmæta óverulegt og öfugt. Þá skiptir mestu að vera sjálfum sér trúr og þekkja sitt eiginlega raunvirði í hjartanu.

Yderligere informationer