Leidd hugleiðsla og slökun - Stutt hugleiðsla

Af: Trine Holt Arnsberg, Audur Bjarnadottir (læst af), E.S. (oversætter)

Lytteprøve

Beskrivelse

Hugleiðslan hentar sem örstutt hlé í önnum dagsins. Hún getur hjálpað þér að finna hvernig þér líður núna. Þú getur náð henni í vinnunni, í byrjun eða lok vinnudags eða á öðrum tíma sem hentar þegar þú hefur þörf fyrir næði til að huga að líkamanum.

Auður Bjarnadóttir hefur kennt jóga undanfarna tvo áratugi. Hún er með kennsluréttindi í meðgöngujóga, hatha/ashtanga, kundalini, jóga nidra og jógaþerapíu. Auður leiðir fjölda námskeiða í Jógasetrinu þar sem hún sérhæfir sig í meðgöngu- og mömmujóga en hún býr einnig að því að vera Doula. Auður sá einnig um krakkajóga í Stundinni okkar og hefur þar af leiðandi kynnt jóga fyrir fólki á öllum aldri. Trine Holt Arnsberg er skynhreyfiþjálfari og kennari í núvitund. Trine leggur áherslu á úrræða og heildstæða nálgun þegar hún vinnur út frá heildrænum skilningi á heilsu fólks. Hún vinnur mikið með börn, hreyfingu og slökun.

Yderligere informationer