Koffortið fljúgandi

Af: H.c. Andersen, Steingrímur Thorsteinsson (oversætter)

Læseprøve

Beskrivelse

Forríkur kaupmaður, sem ávaxtað hefur pund sitt á besta mögulega máta fellur frá. Sonur hans er ekki lengi að taka sig til og eyða arfinum. Fljótlega stendur hann uppi allslaus og vinasnauður, fyrir utan einn, sem af hjartagæsku sinni yfirgefur hann ekki. Sá sendir honum koffort, sem er gætt þeirri undarlegu náttúru að geta flogið.

Kaupmannssonurinn stígur um borð og flýgur til fjarlægra landa. Þar kemst hann í kynni við kóngsdóttur, sem á hvíla undarleg álög. Þau verða óðara ástfangin, en beita þarf brögðum til þess að vinna hugi tengdaforeldranna.

Þýðandi er Steingrímur Thorsteinsson. H.C. Andersen (1805-1875) er eitt þekktasta skáld Danmerkur. Eftir hann liggja á fjórða þúsund ævintýra sem þýdd hafa verið á meira en 125 tungumál. „Koffortið fljúgandi" er einskonar rammasaga, svolítið í anda Þúsund og einnar nætur. Andersen setur hér sögu inní sögu og báðar eru skemmtilega í hans anda. Önnur inniheldur konunglega ástarsögu, en í hinni lifnar húsbúnaðurinn við. Báðar hafa þær boðskap, sem ungum og öldnum lesendum er til eftirbreytni.

Yderligere informationer