Hugleiðsla og slökun fyrir börn

Af: Trine Holt Arnsberg, Audur Bjarnadottir (læst af), E.S. (oversætter)

Lytteprøve

Beskrivelse

Leidd hugleiðsla og slökun þar sem við förum með 5-8 ára gömlum börnum í rólegar skynferðir. Tilvalið til hlustunar þegar börnin hafa þörf fyrir hvíld í önnum dagsins. Bókin inniheldur 10 skapandi hugleiðslur sem auðvelda þeim að slaka á, sofna, vakna, anda og finna ævintýrin innan eigin hugarheims.



Auður Bjarnadóttir hefur kennt jóga undanfarna tvo áratugi. Hún er með kennsluréttindi í meðgöngujóga, hatha/ashtanga, kundalini, jóga nidra og jógaþerapíu. Auður leiðir fjölda námskeiða í Jógasetrinu þar sem hún sérhæfir sig í meðgöngu- og mömmujóga en hún býr einnig að því að vera Doula. Auður sá einnig um krakkajóga í Stundinni okkar og hefur þar af leiðandi kynnt jóga fyrir fólki á öllum aldri. Trine er skynhreyfiþjálfari og kennari í núvitund. Hún vinnur með börn, hreyfingu og slökun út frá tilfinningalegri og heildrænni nálgun.

Yderligere informationer